Þýðingar fyrir W3C
Þýðingar fyrir W3C eru stórt verkefni sem er unnið að megninu til í sjálfboðavinnu. Nú þegar er búið að þýða stóran hluta skjalanna yfir á fjölmörg tungumál, en enn er gríðarlega mikil vinna eftir. Það að fá W3C skjölin þýdd á íslensku er gríðarleg búbót fyrir okkur sem vinnum í vefgeiranum og vonandi að sú vinna gangi hratt og vel.
Skjölin er hægt að nálgast á w3Iceland vefnum.
Vefur Frímúrarareglunnar á Íslandi
Frímúrarareglan á Íslandi er sjálfstætt félag eða samtök karlmanna úr öllum hópum þjóðfélagsins sem hefur mannrækt að markmiði. Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um allar stúkur Reglunnar, fundartíma og annað sem viðkemur starfi Reglu-bræðra.
Vefurinn var uppsettur á Google AppEngine og sérforritaður frá grunni. Enn er talsverð vinna eftir áætlað að hún taki það sem eftir lifir veturs.
Ökukennsla 17.is
Þetta verkefni var unnið fyrir Sigurð Jónasson, ökukennara með meiru. 17.is hefur sannað sig sem góður vefur og náði fljótt flugi á leitarvélum, enda lénið gott og markhópurinn auðveldlega skilgreindur. Kennt er á Toyota Rav4 með dísel vél sem er sérstaklega hentug fyrir byrjendur. Einnig er kennt á mótorhjól og er Sigurður með nokkur Kawasaki ER6N hjól, auk annarra minni fyrir þá sem hafa ekki aldur til að taka réttindi á stóru hjólin.
Sigurður rekur í tengslum við 17.is Facebook Fan síðu þar sem margir af nemendum hans hafa skráð sig.
