Fyrsta skjalið þýtt á íslensku

Ég tók að mér að þýða nokkur skjöl fyrir World Wide Web Consortium (W3C) varðandi staðla tengdum vefsíðu gerð. Fyrsta skjalið (Style) er nú þýtt á w3iceland.com og fleiri væntanleg á næstu dögum.

Markmið W3C er að þýða smátt og smátt allann grunninn yfir á sem flest tungumál og er þetta kærkomin búbót við íslenska vefflóru.

Þýðing á svona skjölum er heilmikið verk og talsvert flókið þar sem mörg hugtök eru notuð sem ekki hafa verið þýdd eða staðfærð fyrir íslenskt mál. Ég tek því öllum ábendingum og athugasemdum fagnandi sem geta orðið til þess að þýðingarnar verði betri og nothæfari.

Nú þegar er komin mjög góð endurgjöf á fyrsta skjalið og munum við endurbæta þá þýðingu um leið og tími gefst til.

Leave a Reply

 

 

 

You can use these HTML tags

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>